Reykjavíkurvegur 1, dagsektir vegna lausafjármuna á lóð
Reykjavíkurvegur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 793
15. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á lóðinni Reykjavíkurvegur 1 hefur safnast mikið af lausamunum, sófasett, dekk, timbur og fleira, eigandi hefur fengið bréf og ekki brugðist við.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda að Reykjavíkurvegi 1. Kvartanir hafa borist vegna lausamuna sem safnast hafa á lóðinni. Bréf vegna þessa var sent 5.2.2020 og hefur ekki verið brugðist við ábendingum. Dagsektir verða lagðar á samkvæmt 56.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. 20.000 kr. á dag frá og með 29.apríl 2020.