Drangahraun 7, deiliskipulagsbreyting
Drangahraun 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 798
27. maí, 2020
Annað
Fyrirspurn
Fasteignafélag KK ehf. sækir 10.3.2020 um deiliskipulagsbreytingu Drangahrauns 7. Nýjar teikningar bárust 7.4.2020. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti þann 15.4.2020 að grenndarkynna tillöguna lóðarhöfum Drangahrauns 5, 10-12 og 14 með athugasemdafresti til 15.5.2020 í samræmi við ákvæði 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningu er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir breytt deiliskipulag að Drangahrauni 7 og að málinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120295 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030083