Lántökur 2020
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1840
22. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.janúar sl. Tillaga liggur fyrir fundinum: Lagt er til að sækja um lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2020 þar sem gert var ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1,130 milljónum króna vegna endurfjármögnunar á erlendu kúluláni á eindaga á árinu. Jafnframt er veitt heimild að ganga frá skammtímafjármögnun allt að 500 milljónum króna þar til gengið verður frá endanlegri fjármögnun.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skammtímafjármögnun allt að 500 milljónum króna þar til gengið verður frá endanlegri fjármögnun. Skammtímalánið ber 3,50% vexti óverðtryggt og verður greitt upp þegar endanleg fjármögnun á langtímaláni vegna endurfjármögnunar á kúluláni skv. fjárhagsáætlun hefur náðst. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu.