Vesturbraut 15, dagsektir
Vesturbraut 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 772
30. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á lóðinni við Vesturbraut 15 eru tveir geymsluskúrar. Gerð hefur verið grein fyrir öðrum þeirra. Eiganda hefur verið send bréf þar sem erindið hefur verið ítrekað.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda Vesturbrautar 15. Settir hafa verið upp geymsluskúrar og einungis hefur verið gerð grein fyrir öðrum þeirra. Eigandi hefur fengið bréf þess efnis en ekki brugðist við. Dagsektir verða lagðar á frá og með 13. nóvember 2019 og eru 20.000kr. á dag í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122844 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027593