Lækjarhvammur 1, ósk um lóðarstækkun
Lækjarhvammur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3541
26. mars, 2020
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 10.mars sl. Umsókn Sigurbjörns Viðars Karlssonar og Svandísar Eddu Gunnarsdóttur um lóðarstækkun á lóðinni Lækjarhvammi 1 dags. 30.09.2019 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 17.12.2019 var samþykkt að grenndarkynna erindið og tillögu að breytingu á deiliskipulagi með vísan til 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindið var grenndarkynnt frá 21.01.-18.02.2020. Athugasemdir bárust. Samantekt skipulagsfulltrúa dags. 27.2.2020 vegna framkominna athugasemda lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir lóðarstækkunina fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.
Svar

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umbeðna lóðarstækkun en bendir á að vinna þarf tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem gert verði ráð fyrir umræddri stækkun lóðar. Hafi umsókn um breytingu á deiliskipulagi ekki borist sveitarfélaginu innan 12 mánaða frá samþykkt þessari telst hún úr gildi fallin. Málinu er vísað til skipulags- og byggingaráðs.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121771 → skrá.is
Hnitnúmer: 10035955