Hlíðarbraut 10, þétting byggðar
Hlíðarbraut 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 738
29. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð fól umhverfis- og skipulagssviði á fundi sínum þann 22.9.2020 að svara framkomnum athugasemdum Skipulagsstofnunar dags. 27.8.2020. Á afgreiðslufundi ráðsins þann 6.10.2020 var svar skipulagsfulltrúa dags. 02.10.2020 lagt fram. Brugðist hefur verið við athugsemdum Skipulagsstofnunar og liggur nú fyrir frekari húsaskráning er nær til St.Jósepsspítala sem samþykkt hefur verið af Minjastofnun Íslands. Uppdráttur hefur verið uppfærður í samræmi við ábendingar MÍ og í greinagerð deiliskipulagsins eru ákvæði um að gæta þurfi að Þórukletti við útfærslu lóðar.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir þær breytingar sem gerðar hafa verið á greinargerð deiliskipulagsuppdráttar og að málinu skuli lokið í samræmi við skipulagslög.