Krýsuvík Hamranes, umsókn um lóð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1838
11. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 5.desember sl. HS Veitur sækja um lóð fyrir færanlega dreifistöð við Krýsuvíkurveg, Hamranes, Hafnarfirði. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs mætir til fundarins.
Ólafur Ingi Tómasson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi lóð verði úthlutað til HS Veitna hf.
Ólafur Ingi Tómasson tók aftur sæti á fundinum.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóð til HS veitna hf. í samræmi við fyrirliggjandi umsókn