Vikurskarð 10 og 12, umsókn til skipulagsfulltrúa
Vikurskarð 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 766
4. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Óðalhús ehf. óskar eftir deiliskipulagsbreytingu á Vikurskarði 10 og 12 þann 23.07.2019. Í breytingunni felst að lögun og staðsetning byggingarreita verði breytt og bílastæði verði fyrir framan hvert hús. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 25.7. sl. er samþykkt að grenndarkynna erindið í samræmi við a. lið 2.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Erindið var grenndarkynnt frá 25.7. - 15.8.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulagsfulltrúi samþykkir deiliskipulags breytingarnar er ná til lóðanna við Vikurskarð 10 og 12 og að málsmeðferð skuli lokið í samræmi við skipulagslög.