Hvassahraun,flugvöllur,uppbygging,efnahagsleg áhrif á Hafnarfjarðabæ
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3522
20. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þ. 12.júní sl. að vísa málinu til bæjarráðs.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi tillögu. Úttekt: Efnahagsleg áhrif uppbyggingar flugvallar í Hvassahrauni á Hafnarfjarðarbæ Lagt er til að Hafnarfjarðarbær ráði aðila til þess að leggja mat á þau hagrænu tækifæri Hafnarfjarðarbæjar af mögulegri uppbyggingu flugvallar í Hvassahrauni. Annars vegar væri skoðaðar líklegar sviðsmyndir af auknum útsvarstekjum bæjarins og hinsvegar tekjur af lóðasölu vegna meiri ásóknar í samgöngutengdum atvinnulóðir í bænum. Úttektin skal miða við fjórar sviðsmyndir: A) ábata af nýjum kennslu og æfingavelli B) ábata af nýrri miðstöð fyrir innanlandsflug og C) ábata af nýjum alhliða alþjóðaflugvelli. D) ábata af nýjum alhliða alþjóðaflugvelli og stórskipahafnar að Óttarstöðum.
Svar

Bæjarstjóra falið að taka saman gögn og leita upplýsinga um kannanir og úttektir sem gerðar hafa verið og eru í vinnslu af hálfu ríkisins og annarra aðila á fýsileika flugvallar í Hvassahrauni.

Bæjarráð vísar skoðun á nýrri stórskipahöfn í landi Óttarstaða til hafnarstjórnar.