Matarútboð skóla 2019
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3524
11. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Farið yfir tilboð í útboði á mat - Framleiðsla/-reiðsla á mat fyrir leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar 2019-2023.
Lagður fram tölvupóstur frá Dögum hf. þar sem óskað er eftir því að fyrirtækið fái að falla frá tilboði sínu í framleiðslu/reiðslu á mat fyrir leik- og grunnskóla.
Guðmundur Ragnar Ólafsson innkaupastjóri og Jón Ingi Þorvaldsson lögmaður mæta til fundarins.
Til afgreiðslu.
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir ósk Daga hf. um að falla frá tilboði sínu.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að gengið verði til samninga við Skólamat ehf. um framleiðslu/-reiðsla á mat og þjónustu fyrir leik- og grunnskóla bæjarins og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi.