Íbúasamráðsverkefni, Samband íslenskra sveitarfélaga
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1824
3. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
20.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.mars sl. Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um íbúasamráðsverkefni.
Andri Ómarsson verkefnastjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Hafnarfjarðarkaupstaður leggi fram umsókn um þátttöku í Íbúasamráðsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar.
Svar

Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Einnig Ágúst Bjarni Garðarsson.

Samþykkt samhljóða.