Jófríðarstaðarvegur 11, fyrirspurn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 745
6. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Þann 25.2.2019 leggja Íris Sveinsdóttir og Lýður Árnason inn fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa. Óskað er eftir að stækka húsið og byggja ofan á bílskúr. Með erindinu fylgja skissur er sýna fyrirhugaða stækkun.
Svar

Tekið er jákvætt í erindið, svo fremi að farið verði eftir gildandi skilmálum. Heimild er skv. gildandi deiliskipulagi, Suðurbær sunnan Hamars, að stækka húsið að hámarki um 30 fermetra. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni.