Óseyrarbraut 25, deiliskipulagsbreyting
Óseyrarbraut 25
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 680
2. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á fundi Skipulags- og byggingarráðs þann 26.02.2019 var lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Óseyrarbraut 25. Skipulags- og byggingráð samþykkti framlagða breytingu á deiliskipulagsuppdrætti Mönduls ehf. dags. feb. 2019 og að tillagan verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt var lagt til við hafnarstjórn að staðfesta framangreinda samþykkt og gera tillögu til bæjarstjórnar til staðfestingar. Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt á umhverfis- og skipulagssviði kynnti skipulagstillöguna. Hafnarstjórn samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 26.02.2019 og Bæjarstjórn á fundi sínum þann 06.03.2019. Tillagan var auglýst frá 08.05-18.06.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Þar sem engar athugasemdir bárust samþykkir skipulags- og byggingarráð að málinu verði lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 207169 → skrá.is
Hnitnúmer: 10086017