Lántökur 2019
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3522
20. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:

„Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 350.000.000- krónur með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við samþykkta skilmála að lánsamningi sem liggur fyrir fundinum. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimilis sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."