Drangahraun 7, fyrirspurn
Drangahraun 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 742
13. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Fasteignafélagsins KK ehf. frá 15.01.2019. Spurt er hvort leyft yrði að byggja stigahús að lóðarmörkum austurhliðar hússins sbr. teikningar. Núverandi stigi er felldur niður. Beiðni Fasteignafélagsins KK ehf. um endurskoðun afgreiðslu frá 23.1.2019 barst 30.1.2019.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi taka jákvætt í að færa/breyta byggingarreit á lóðinni samkvæmt tillögu dagsettri 12. febrúar 2019.
Vakin er athygli á að þegar tekið er jákvætt í fyrirspurn veitir það ekki heimild til að hefja framkvæmdir. Sækja þarf um breytingu á gildandi deiliskipulagi vegna breytinga á byggingarreit.