Færsla lagna við Reykjanesbraut, framkvæmdarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1819
23. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 15.janúar sl. VSB f.h. Veitna og HS veitna sækir um framkvæmdaleyfi með bréfi dags. 10.01.2019 til að leggja nýjar veitulagnir samhliða Reykjanesbraut vegna tvöföldunar hennar á kafla frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót. Fulltrúar VSB mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Með vísan í 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn VSB f.h. Veitna og HS veitna, dags. 10.01.2019, um leyfi til að leggja nýjar veitulagnir vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að gefið verði út framkvæmdaleyfi vegna færslu lagna við Reykjanesbraut í samræmi við fyrirliggjandi umsókn.