Hafnarfjarðarlína HF1, umsókn um framkvæmdaleyfi til að endurnýja háspennustreng HF1 við Reykjanesbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1819
23. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 15.janúar sl. Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi með bréfi dags. 17.12.2018 til að leggja jarðstreng á um 1.km. kafla og breyta stofnlögn Vatnsveitu vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót. Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Með vísan í 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn Landsnets, dags. 17.12.2018, um leyfi til framkvæmda vegna jarðstrengs og breytingar á stofnlögn vatns vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Rósa Guðbjartsdóttir víkur af fundi kl. 14:38 og hennar sæti tekur Skarphéðinn Orri Björnsson.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að gefið verði út framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar háspennustrengs við Reykjanesbraut í samræmi við fyrirliggjandi umsókn.