Mosabarð 15, stækkun á húsi
Mosabarð 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 677
21. maí, 2019
Frestað
Fyrirspurn
Elsa Esther Kristófersdóttir sótti þann 19.12.2018 um að stækka húsið með viðbyggingu á norðurhlið ásamt breytingu innandyra og nýrri klæðningu að utan samkvæmt teikningum Sturla Þórs Jónssonar. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 6.3.2019 var samþykkt að grenndarkynna erindið í samræmi við 1.mgr. 2.gr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Grenndarkynnt var frá 12.3. - 9.4.2019. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 16.04.2019 var skipulagsfulltrúa falið að gera umsögn vegna framkominna athugasemda. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2019.
Svar

Erindi frestað.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121999 → skrá.is
Hnitnúmer: 10036882