Reykjanesbraut í Hafnarfirði, umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tvöföldunar
Reykjanesbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 668
15. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til að tvöfalda kaflann á Reykjanesbraut frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót með því að byggja nýja akbraut sunnan núverandi vegar. Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Svar

Með vísan í 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn Vegagerðarinnar, dags. 8.01.2018, um leyfi til framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð því til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121182