Vikurskarð 12, byggingarleyfi
Vikurskarð 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 761
24. júlí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Óðalhús ehf. sækir þann 31.10.2018 um leyfi til að byggja parhús samkvæmt teikningum Friðriks Ólafssonar dags. 27.3.2018. Nýjar teikningar bárust 5.11.2018. Skipulags- og byggingarfulltrúi visar erindinu til grenndarkynningar á fundi sínum þann 19.6.sl. samanber A-lið 2. gr. Samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags-og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Tillagan gerir ráð fyrir óverulegri færslu á byggingareit mannvirkja. Umsóknin skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vikurskarðs 10, Glimmerskarðs 9 og Glimmerskarðs 7. Grenndarkynnt var frá 28.6. til 26.7.2019. Samþykki þeirra er fengu grenndarkynninguna liggur nú fyrir. Engar athugsemdir bárust.
Svar

Samþykki þeirra er fengu grenndarkynningu vegna breytingatillögunnar liggur nú fyrir. Grenndarkynningu er því lokið. Embættinu þurfa að berast uppdrættir af deiliskipulagsbreytingunni til varðveislu og samþykktar Skipulagsstofnunar. Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.