Kapelluhraun 1. áfangi, endurskoðun deiliskipulags
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1821
20. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 12.febrúar sl. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 20.11.2018 tillögu að breyttu deiliskipulagi Kapelluhrauns 1. áfanga. Lagður fram leiðréttur uppdráttur dags. 07.02.2019 vegna misritunar sem var í fyrra gagni.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðan uppdrátt að breyttu deiliskipulagi dags. 07.02.2019 og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að hún staðfesti ofangreint.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.


Bæjarstjórn staðfestir uppdrátt að breyttu deiliskipulagi Kapelluhrauns 1. áfanga með 11 greiddum atkvæðum.