Kapelluhraun 1. áfangi, endurskoðun deiliskipulags
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3508
22. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 20.nóv. sl. Lagt fram á ný erindi Arcusar ehf. dags. 01.10.2018 vegna lóðarinnar Koparhellu 5. Ennfremur lögð fram hugmynd að endurskoðuðu deiliskipulagi Kapelluhrauns 1. áfanga og skilmálum lóðarinnar Koparhella 5.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi og þeirri tillögu að lóð sem tillagan gerir grein fyrir og vísar erindinu til Bæjarráðs.
Svar

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu að breyttu deiliskipulagi og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna áfram að málinu.