Krýsuvíkurberg, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1817
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
8. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 4.des. sl. Skipulags- og byggingarráð samþykki á fundi sínum þann 09.10.2018 að hefja vinnu við nýtt deiliskipulag fyrir Krýsuvíkurberg. Lögð fram drög að skipulagslýsingu fyrir Krýsuvíkurberg.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlögð drög að skipulagslýsingu fyrir sitt leiti og að málsmeðferðin verði í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skipulagslýsingu.