Rauðhella 3, dagsektir, vantar verkáætlun, hús hafa risið án leyfa
Rauðhella 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 758
3. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að Rauðhellu 3 hafa risið byggingar sem ekki er leyfi fyrir, bæði innan og utan lóðar, einnig er aðalhúsið ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Eiganda var gert að skila inn verkáætlun, leggja inn teikningar og fjarlægja byggingar. Með bréfi dags. 05.12.2018, lagði Verksýn fram f.h lóðarhafa tímaáætlun.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eiganda að Rauðhellu 3. Eigandi hefur ekki brugðist við í samræmi við eigin verkáætlun dags. 5.12.2018. Dagsektir verða lagðar á frá og með 1. ágúst 2018 og verða 20.000 kr á dag í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120585 → skrá.is
Hnitnúmer: 10031626