Fjárhags- og rekstraráætlun 2019
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3526
29. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn frá fulltrúa Samfylkingarinnar.
Svar

Í árshlutareikningi Hafnarfjarðarhafnar fyrir janúar - júní 2019, sem birtur er með fundargerð Hafnarstjórnar dags. 28. ágúst 2019, á vef Hafnarfjarðarbæjar, kemur fram að skammtímakröfur á „tengda aðila“ hafa hækkað á milli ára, frá því að vera 238.639.515 í ársreikningi 2018 en eru 343.595.037 við sex mánaða uppgjör 2019.
Í svörum við fyrirspurnum frá fulltrúa Samfylkingarinnar í Hafnarstjórn kemur fram að um er að ræða millilán til bæjarsjóðs.
Í ljósi þessa óskar undirrituð eftir:
a) skýringum á þessari miklu hækkun milli ára, og
b) samantekt á slíkum millilánum til bæjarsjóðs úr hafnarsjóði í ársreikningum áranna 2014 - 2018 ásamt með 6 mánaða uppgjöri fyrir 2019.
c) upplýsingum um það hvort önnur B-hluta fyrirtæki bæjarins hafi veitt bæjarsjóði sambærileg lán á sama tímabili og þær fjárhæðir sem um kann að vera að ræða.

Adda María Jóhannsdóttir