Hverfisgata 54, byggingarleyfi, kvistur og svalir
Hverfisgata 54
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 722
19. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju umsókn Jóns Kristjáns Ólasonar og Þorbjargar Dóru Gunnarsdóttur frá 27.7.2018 um að byggja kvisti og svalir (flóttaleið) á núverandi rishæð (3.h.). Einnig er sótt um að setja verönd norðanmegin á 2. hæð. Inntök eru færð úr baðherbergi og sett í rými undir útistiga með aðgengi utanfrá samkvæmt teikningum Lárusar Ragnarssonar dags. 15.6.2018. Nýjar teikningar bárust 17.9.2018.
Svar

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.