Brenniskarð 1-3, fyrirspurn
Brenniskarð 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1815
14. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
8. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 6. nóvember sl.
Lagt fram á ný leiðrétt erindi Jóns Guðmundssonar fh. Þrastarverks ehf. þar sem sótt er um að færa bílakjallara frá húsi nr. 1 og að húsi nr. 3 breyta skipulagi á bílastæðum og fjölga um eina íbúð í húsi nr. 3. Erindinu var vísað aftur til skipulags-byggingarráðs á fundi bæjarstjórnar þann 31.10. s.l. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að nýju að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Brenniskarðs 1-3 verði auglýst og að málsmeðferð verði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn að samþykkt verði að auglýsa framangreinda deiliskipulagsbreytingu og að málsmeðferð verði í samræmi við framangreind lagaákvæði.
Fulltrúi Viðreisnar, Jón Garðar Snædal Jónsson, óskar eftir að fært sé til bókar:
1. Verði deiliskipulagsbreytingin samþykkt. Þá er eðlilegt að benda á það, að á deiliskipulagssvæðinu, þá hafa aðrir lóðarhafar þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara. Við þessa deiliskipulagsbreytingu sem er nú til afgreiðslu, þá má eiga von á því að aðrir lóðarhafar óski eftir sömu deiliskipulagsbreytingu, sambærilegri þeirri sem nú er gerð tillaga að. 2. Einhverjir lóðarhafar hafa þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara, þann kostnað vilja þeir væntanlega fá til baka, verði þessi breytingartillaga samþykkt. Það gæti leitt til skaðabótaskyldu fyrir Hafnarfjarðarbæ. 3. Búast má við að meiri kostnaður leggst á bæjarfélagið, ef lóðarhafar telja að jafnræðis á milli aðila hafi ekki verið gætt.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Jón Ingi Hákonarson. Ólafur Ingi svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Jón Helgi Hákonarson. Ólafur Ingi svarar andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 greiddum atkvæðum að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Brenniskarðs 1-3 verði auglýst og að málsmeðferð verði í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einn bæjarfulltrúi greiðir atkvæði á móti og einn bæjarfulltrúi situr hjá við atkvæðagreiðslu.

Jón Ingi Hákonarson kemur að svohljóðandi bókun:

Bæjarfulltrúi Viðreisnar Jón Ingi Hákonarson vill bóka eftirfarandi

1. Verði deiliskipulagsbreytingin sem nú var samþykkt er eðlilegt að benda á það, að á deiliskipulagssvæðinu, hafa aðrir lóðarhafar þegar lagt í kostnað vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara. Við þessa deiliskipulagsbreytingu sem er nú til afgreiðslu, má eiga von á því að aðrir lóðarhafar óski eftir sömu deiliskipulagsbreytingu, sambærilegri þeirri sem nú hefur verið samþykkt.
2. Einhverjir lóðarhafar hafa þegar lagt í kostnað
vegna jarðvinnu við það að koma fyrir bílakjallara, þann kostnað vilja þeir væntanlega fá til baka, nú þegar þessi tillaga hefur verið samþykkt. Það gæti leitt til skaðabótaskyldu fyrir Hafnarfjarðarbæ.
3. Búast má við að meiri kostnaður leggst á bæjarfélagið, ef lóðarhafar telja að jafnræðis á milli aðila hafi ekki verið gætt.


221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 213465 → skrá.is
Hnitnúmer: 10100711