Verklagsreglur um skólavist hafnfirskra grunnskólabarna
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1819
23. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 16.janúar sl. Drög frá síðasta fundi lögð fram til staðfestingar.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi verklagsreglur um skólavist hafnfirskra grunnskólabarna. Jafnframt leggur fræðsluráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreindar reglur.
Svar

Til máls tekur Kristín Thoroddsen. Einnig tekur til máls Adda María Jóhannsdóttir. Kristín Thoroddsen kemur að andsvari. Adda María svarar andsvari.

Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Kristín Thoroddsen.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi verklagsreglur. Þau Friðþjófur Helgi Karlsson og Adda María Jóhannsdóttir sitja hjá við atkvæðagreiðsluna og þau gera jafnframt grein fyrir hjásetu sinni.