Lántökur 2018
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3498
12. júlí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lagðir fram lánasamningar.
Tillaga að bókun: Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði Bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga annars vegar að fjárhæð 375.649.590.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum, og hins vegar lán að fjárhæð 130.000.000 kr. til 15 ára í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165.3899, og Sigríði Kristinsdóttur, kt. 171062-2099 í fjarveru Rósu veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Svar

Rósa Steingrímsdóttir, fjármálastjóri, mætir til fundarins undir þessum lið.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir svohljóðandi bókun:

Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarráð Hafnarfjarðar í umboði Bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga annars vegar að fjárhæð 375.649.590.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum, og hins vegar lán að fjárhæð 130.000.000 kr. til 15 ára í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum.

Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165.3899, og Sigríði Kristinsdóttur, kt. 171062-2099 í fjarveru Rósu veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.