Lántökur 2018
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1817
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 6.desember sl. Lánasjóður sveitarfélaga veitir Hafnarfjarðarkaupstað lán í flokki LSS55 að andvirði 904.431.761 króna á 2,55% vöxtum og Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar lán í LSS55 að andvirði 100.492.418 króna á 2,55% vöxtum sbr. meðfylgjandi lánasamninga.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna Hafnarfjarðarkaupstaðar sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 904.431.761.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánsamningi sem liggur fyrir fundinum. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimilis sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar, kt. 570790-1029, sem er 100% í eigu Hafnarfjarðarbæjar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 100.492.418.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir fundinum og jafnframt að veita einfalda ábyrgð vegna lántökunnar. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Að auki er samþykkt að veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar. Lánið er tekið til fjármögnunar á íbúðakaupum húsnæðisskrifstofu, sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir samhljóða hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 904.431.761.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánsamningi sem liggur fyrir fundinum.

Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimilis sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með samhljóða að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar, kt. 570790-1029, sem er 100% í eigu Hafnarfjarðarbæjar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 100.492.418.- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir fundinum og jafnframt að veita einfalda ábyrgð vegna lántökunnar. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Að auki er samþykkt að veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar. Lánið er tekið til fjármögnunar á íbúðakaupum húsnæðisskrifstofu, sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.