Stefnuyfirlýsing meirihluta bæjarstjórnar 2018
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3501
30. ágúst, 2018
Annað
Fyrirspurn
Úr fundargerð bæjarstjórnar frá 20. júní 2018. Næst til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og ber upp svohljóðandi fyrirspurn: 'Fyrirspurn, óskast svarað í bæjarráði: Óskað er eftir kostnaðaráætlun meirihlutasáttmála Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, aðallega vegna sérgreindra verkefna: Stjórnsýsluúttekt Matráðar í skólum Sængurgjöf Aukin framlög og styrkir í mennta- og menningarmálum Hækkun frístundastyrkja Hjólabrettasvæði Hreyfigarður Knatthús Kaplakrika Knatthús Ásvöllum Endurbætur á Suðurbæjarlaug Uppbygging hjóla- og gönguleiða Rafhleðslustöðvar Framboð lóða í samræmi við eftirspurn Endurbætur á Hellisgerði Þjónustustarfsemi í Krýsuvík Lækkun gjalda almennt Lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði Þessi sáttmáli inniheldur fjölmörg verkefni sem munu kosta aukin útgjöld, fjölgun stöðugilda og fleira. Einnig mörg markmið um minni innheimtu gjalda. Að lokum, spurningar um Krúttkörfu: -undir hvaða bókhaldslið flokkast þessi fjárfesting? -hvernig verður innkaupum háttað? Verður tekið tillit til umhverfissjónarmiða (taubleyjur, fjárfesting í plasti), árvekni gegn mansali (hvar framleitt og af hverjum? Barnavinna/félagsleg undirboð?).'
Svar

Lagt fram svar við fyrirspurn frá 20. júní sl.

Guðlaug Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

"Bæjarfulltrúi Bæjarlista þakkar stutt og laggott svar.

Það vekur ákveðna furðu að ekki skuli vera hægt að áætla svo mikið sem nálgun á kostnað t.d. við matráð í skóla, sem eru útgjöld sem byggja á kjarasamingum.

Einnig skortir svör við spurningum um bókhald og innkaupaferli vegna Krúttkörfu og er hér með óskað eftir að fjármálasvið og eftir atvikum innkaupastjóri svari þeim spurningum sem að körfunni lúta."