Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1859
9. desember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá Bergi Þorra Benjamínssyni varabæjarfulltrúa þar sem hann tilkynnir afsögn sína sem fulltrúi í fræðsluráði og sem varamaður í bæjarstjórn Hafnarfjarðar vegna flutnings í annað sveitarfélag.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að aðalfulltrúi í fræðsluráði í stað Bergs Þorra verði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Norðurbakka 11c, Hfj.

Auk þess verði þær breytingar á skipan fjölskylduráðs að aðalfulltrúi verði Kristjana Ósk Jónsdóttir, Heiðvangi 58, Hfj.sem kemur þar í stað Guðbjargar Oddnýjar.