Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3499
8. ágúst, 2018
Annað
Fyrirspurn
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi mætti til fundarins.
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 10. júlí s.l. "Tekin til umræðu á ný breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna færslu á háspennulínu við Hamranes. Lögð var fram skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 og hún samþykkt. Með bréfi skipulagsstofnunar dags. 19.06. 2018 er óskað eftir umsögn Hafnarfjarðarbæjar um tilkynningu Landsnets um færslu Hamraneslínu 1 og 2. Lögð fram drög að umsögn Hafnarfjarðarbæjar dags. 09.07.2018. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn dags. 09.07.2018 vegna tilkynningu Landsnets um bráðabirgðafærslu Hamraneslínu 1 og 2."
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi skipulagslýsingu dags 22. maí 2018 og umsögn Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 9. júlí 2018.