Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1879
10. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl. Umhverfis- og framkvæmdaráð, á fundi sínum þann 20. október 2021, óskar eftir við skipulags- og byggingarráð að farið verði í skipulagsbreytingu vegna færslu Hamraneslínu við Ásland 4.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagsbreyting vegna færslu Hamraneslínu við Hamranes og Ásland 4 verði vísað til vinnu við aðalskipulagsbreytingu Áslands 4 og 5. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Sigurður Þ. Ragnarsson og Ingi Tómasson svarar andsvari.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.