Brekkugata 12, grenitré
Brekkugata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 649
15. maí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Helga Lára Þorsteinsdóttir og Pétur Örn Friðriksson óska með tölvupósti dags. 12.3. 2018 eftir því að fjarlægja grenitré sem stendur á lóðinni. Tréð er bæði orðið mjög stórt og barrlaust vegna sitkalúsar og eins varpar það miklum skugga á umhverfi sitt. Fyrir liggur minnisblað garðyrkjustjóra sem gerir ekki athugasemd við erindið þar sem tréð er illa farið. Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa sem vísaði erindinu í skipulags- og byggingarráð skv. 3. gr.samþykktar um friðun og verndun trjágróðurs í Hafnarfirði. Minnispunktar garðyrkjustjóra ligga fyrir.
Svar

Skipulags- og byggingarráð heimilar að grenitréð verði fjarlægt.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120184 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029970