Kirkjuvegur 9, dagsektir, ósamþykktar breytingar smáhýsis á lóð.
Kirkjuvegur 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 699
27. mars, 2018
Annað
Fyrirspurn
Smáhýsi við Kirkjuveg 9 hefur verið innréttað og er ekki lengur geymsluskúr í samræmi við samþykktar teikningar.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigendur að Kirkjuvegi 9. Geymsluskúr á lóð hefur verið innréttaður sem íbúðarherbergi og er ekki heimild til þess. Eigandi hefur fengið bréf vegna þessa og ekki brugðist við. Dagsektir verða því lagðar á eigendur Kirkjuvegar 9 í samræmi við 56.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, 20.000 kr á dag frá og með 16 apríl n.k.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121381 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034322