Siggubær, fella 2 lerkitré
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 693
7. febrúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur beiðni frá verkefnisstjóra framkvæmda- og rekstrardeildar um að fella 2 lerkitré sem standa við gafl hússins Siggubæ í tengslum við lagfæringu á húsinu. Trén slást utan í gafl hússins og rætur þeirra farnar að skemma gólfið. Einnig þarf að gera drenlögn í kringum húsið og standa trén í vegi fyrir að það sé hægt. Umsagnir frá garðyrkjustjóra Hafnarfjarðar liggur fyrir ásamt áliti frá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til umhverfis-og framkvæmdaráðs.