Fundargerðir 2018, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1811
19. september, 2018
Annað
‹ 17
18
Fyrirspurn
Fundargerð fræðsluráðs frá 12.september sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 14.sept. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 13.september sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 5.september sl. b. Fundargerð menningar-og ferðamálanefndar frá 6.sept.sl. c. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 30.ágúst sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 12.sept.sl. Fundargerðir skipulags- og byggingaráðs frá 11. og 17.september sl. Fundargerð forsetanefndar frá 17.sept. sl.
Svar

Til máls tekur Guðbjörg Oddný Jónsdóttir undir fundargerð menningar-og ferðamálanefndar frá 6. sept.sl.

Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson undir 2. lið frá fundi fræðsluráðs frá 12. september sl.

Til máls öðru sinni tekur Friþðjófur Helgi Karlssons undir 8. lið fjölskylduráðs frá 14.september sl. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri. Friðþjófur Helgi svarar andsvari.

Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir einnig undir 8. lið fjölskylduráðs frá 14.september sl. Rósa Guðbjartsdóttir kemur til andsvars. Andsvari svarar Guðlaug Kristjánsdóttir.

Til máls tekur Kristín María Thoroddsen undir undir 2. lið frá fundi fræðsluráðs frá 12. september sl. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir. Kristín María svarar andsvari. Einnig kemur til andsvars Friðþjófur Helgi.

Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri undir 8. tl. fjölskylduráðs frá 14.september sl. Til andsvars kemur Guðlaug Kristjánsdóttir.