Hraun vestur, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 646
3. apríl, 2018
Annað
Fyrirspurn
Hugmyndir að rammaskipulagi svæðisins, Hraun vestur, teknar til áframhaldandi umfjöllunar. Í kjölfar kynningarfundar sem haldinn var í Bæjarbíói þann 14.03. s.l. barst fyrirspurn Kristínar Helgadóttur send í tölvupósti 15.3.2018. Lögð fram drög að svari við fyrirspurninni dags. 26.3. 2018. Jafnframt tekin til umfjöllunar hugmynd um heimasíðu vegna verkefnisins.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að svara fyrirspurninni í samræmi við fyrirliggjandi drög.
Jafnfram er skipulagsfulltrúa falið að vinna að frekari kynningu á rammaskipulagi svæðisins, Hraun vestur.