Strandgata 30, byggingarleyfi
Strandgata 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1829
26. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
10. liður á fundi skipulags- og byggingarráðs dags. 18.6.2019.
Lögð fram á ný breyting á greinagerð deiliskipulags Strandgötu 30. Breytingin felur í sér skilgreiningu á bílastæðakröfum. Lagður fram uppdráttur ASK arkitekta dags. 29.05.2019. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu til staðfestingar á fundi sínum þann 04.06. s.l. Bæjarstjórn vísaði erindinu aftur til skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 02.06. s.l.
Skipulags- og byggingarráð endursamþykkir breytta greinargerð deiliskipulagsins með vísan til 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar. Viðreisn tekur ekki afstöðu til málsins.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson.

Einnig tekur til máls Adda María Jóhannsdóttir.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingaráðs.