Skólahreystibraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 697
14. mars, 2018
Annað
Fyrirspurn
Hafnarfjarðarbær sækir um að staðsetja skólahreystibraut á Víðistaðatúni, neðan Víðistaðaskóla þar sem núverandi hreystivöllur er. Þessi nýi völlur kemur í stað núverandi vallar.
Svar

Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilar uppsetningu hreystivallarins og mun skipulagsfulltrúi gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli núgildandi deiliskipulags og afgreiðslu fundarins.