Hrauntunga, deiliskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 649
15. maí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 06.03.2018 breytta tillögu að deiliskipulagi byggðar við Hrauntungu samanber uppdrátt Arkibúllunar dags. 20.02.2018 og að málsmeðferð tillögunar yrði í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010. Jafnframt að grenndarkynna skuli deiliskipulagstillöguna. Grenndarkynningu er lokið. Athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.05.2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa og að skipulagshöfundum verði falið að skoða nánar með hvaða hætti megi koma til móts við framkomnar athugasemdir.