Hænur, umsókn um leyfi til að halda hænur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1788
21. júní, 2017
Annað
Fyrirspurn
18.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 15.júní sl. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu um hænsnahald að Svöluási 36.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veita leyfi til hænsnahalds skv. umsókn með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða greiddum atkvæðum að veita leyfi til hænsnahalds skv. fyrirliggjandi umsókn með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu.