Suðurgata 73, breyting á deiliskipulagi
Suðurgata 73
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 619
4. apríl, 2017
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir á ný: Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 8. mars 2017 vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggingarráðs: Ásmundur Kristjánsson sækir 03.03.17 um breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda samkvæmt teikningum sem liggja fyrir hjá byggingarfulltrúa. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn skipulagsfulltrúa á fundi sínum þann 21.03. s.l. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 03.04.2017.
Svar

Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 03.04.20117.