Einhella 6,breyting á deiliskipulagi,fyrirspurn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 629
24. ágúst, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 21.02.2017 að heimila auglýsingu á breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Einhella 6 í samræmi við 1.mgr. 43 gr. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 22.06.2017-03.08.2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Einhellu 6 og að málinu verði lokið í samræmi við 42. gr. skipulagslaga 123/2010.