Rekstrarsamningur, þjónustusamningur, Björgunarsveit Hafnarfjarðar ósk um endurskoðun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1796
6. desember, 2017
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv. sl. Lagður fram rekstrarsamningur milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Andri Ómarsson verkefnastjóri mætti til fundarins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi rekstrarsamning með áorðnum breytingum.
Svar

Forseti leggur til að þessi liður verði tekinn fyrir sem liður 9 á dagskrá bæjarstjórnar þar sem bíða þarf eftir að rétt skjal verði fært undir málið. Er tillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.