Kirkjuvellir 8, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu
Kirkjuvellir 8A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 633
3. október, 2017
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Fjarðarmóta dags. 4. september 2017 þar sem gerð er athugasemd við meðferð og afgreiðslu fyrra erindis þeirra varðandi deiliskipulagsbreytingu á lóðinni Kirkjuvellir 8. Jafnframt er það erindi ítrekað.
Svar

Skipulags- og byggingarráð óskar eftir áliti bæjarlögmanns á fullyrðingu í bréfi Fjarðarmóta ehf. um meint vanhæfi Péturs Óskarssonar um umfjöllun og ákvarðanatöku vegna óska um breytingu á deiliskipulagi Kirkjuvalla 8.

Skipulags- og byggingarráð synjaði þann 4. apríl sl. ósk um deiliskipulagsbreytingu Kirkjuvalla 8 með vísan í minnisblað skipulagsfulltrúa. Í bréfi Fjarðarmóta ehf. er fullyrt að rangar upplýsingar hafi verið settar fram í minnisblaðinu. Með vísan í bréf Fjarðarmóta ehf. og minnisblað Sigurlaugar Sigurjónsdóttur, ASK arkitektar dags. 11. september sl. óskar skipulags- og byggingarráð eftir skriflegu svari frá skipulagsfulltrúa um mismundandi upplýsingar sem koma fram í áðurnefndum minnisblöðum.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir að álit bæjarlögmanns og svar skipulagsfulltrúa verði lagt fram á næsta fundi ráðsins.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197739 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126690