Fyrirspurn, félagslegt húsnæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3451
17. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram svar við fyrirspurn sem lögð var fram á fundi bæjarráðs 27.10.2016 og ítrekuð á fundi 03.11.2016.
Svar

Áheyrnarfulltrúi Vinstri Grænna leggur fram eftirfarandi bókun og fyrirspurnir:

Þrátt fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í að stytta vaxandi biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði er enn a.m.k. 161 umsækjandi talinn í brýnni þörf fyrir slíkt úrræði. Hve margir til viðbótar hafa verið teknir út af listanum vegna þess að þeir endurnýjuðu ekki umsóknir sínar í tæka tíð og hve margir í þeim hópi má gera ráð fyrir að muni endurnýja umsóknir sínar? Hve margir til viðbótar féllu út vegna þess að þeir voru ekki lengur álitnir í "brýnni þörf" og hvaða atriði réðu þar mestu um? Svar við síðari spurningunni óskast sundurliðað svo bæjarfulltrúum gefist betri kostur á að leggja upplýstara mat á núgildandi stigakerfi og endurskoða það í ljósi reynslunnar. Einnig óskast upplýsingar um hvernig tekjuviðmið og íbúðaeign hafa þróast síðustu 5 ár?
Þróun síðustu ára sýnir að þrátt fyrir þá formlegu styttingu sem sem hér um ræðir er við alvarlegt vandamál að glíma sem einungis mun aukast ef ekki verður brugðist við með ábyrgum aðgerðurm. Áheyrnarfulltrúi VG skorar því á bæjarráð að finna þegar í stað leiðir til að það fé sem lagt verður í þennan málaflokk á næsta ári nýtist til fulls, eins og ný lög um stofnframlög gera ráð fyrir, hvort heldur bærinn geri það sjálfur eða í samstarfi aðra. Það gengi þvert gegn hagsmunum bæjarins ef sjóðir hans yrðu nýttir til að greiða fullt verð fyrir íbúðir á sama tíma og bænum býðst að lána einungis 12% til kaupa á hverri íbúð.

Fulltrúar Samfylkingar leggja fram svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingar í bæjarráði ítreka mikilvægi þess að þeim uppsafnaða vanda sem hér birtist og endurspeglar brýna þörf fyrir fjölgun félagslegra íbúða verði mætt með viðunandi hætti í fjárhagsáætlun næsta árs. Ástæða er til að benda á að um lögbundið hlutverk sveitarfélagsins er að ræða samkvæmt lögum um félagsþjónustu.
Gunnar Axel Axelsson
Adda María Jóhannsdóttir

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar Framtíðar leggja fram svohljóðandi bókun:

Biðlisti eftir félagslegu húsnæði í Hafnarfirði hefur verið langur um árabil. Síðasta verulega breyting á framboði á félagslegu húsnæði varð árið 2008 þegar 10 íbúðir voru keyptar, en frá þeim tíma hefur ein íbúð verið keypt og önnur seld. Fjöldi íbúða undanfarin ár hefur þannig verið 238, þar til í lok árs 2016 þegar 3 íbúðir bætast við. Nýgert samkomulag við ASÍ um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Hafnarfirði kveður á um að bærinn fái til umráða 25% íbúða til félagslegra nota. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 er lagt til að 200 milljónum verði varið til uppbyggingar félagslegs húsnæðis.
Starfshópur um félagslegt húsnæði er starfandi, á grunni samstarfssáttmála Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks, þar sem segir: "Rekstur félagslega húsnæðiskerfisins endurskoðaður með fjölgun íbúða að markmiði."
Það er löngu tímabært að gangskör sé gerð í þessum málum og er nú komið í farveg.

Bókanir og gagnbókanir
  • Samfylking
    Fulltrúar Samfylkingar í bæjarráði ítreka mikilvægi þess að þeim uppsafnaða vanda sem hér birtist og endurspeglar brýna þörf fyrir fjölgun félagslegra íbúða verði mætt með viðunandi hætti í fjárhagsáætlun næsta árs. Ástæða er til að benda á að um lögbundið hlutverk sveitarfélagsins er að ræða samkvæmt lögum um félagsþjónustu.
  • Sjálfstæðisflokkur, Framtíð