Hjallabraut, aðalskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 681
13. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi bæjarstjórnar þann 28.11.2018 var samþykkt að vinna að aðalskipulagsbreytingu vegna breyttrar landnotkunar við Hjallabraut í samræmi við 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga. Lýsing vegna breytinganna hefur þegar verið samþykkt. Umsagnir þar til bærra aðila liggja nú fyrir. Einnig hefur verið haldinn íbúafundur þar sem breytingarnar voru kynntar. Nú er lagður fram uppdráttur er sýnir tillögu að aðalskipulagsbreytingunni.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðan uppdrátt og að hann skuli auglýstur í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.