Hjallabraut, aðalskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 621
16. maí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekið fyrir að hyju. Skipulags- og byggingarráð samþykkti fyrir sitt leyti að unnið yrði að breyttri landnotkun fyrir svæðið í samræmi við 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga á fundi sínum þann 13.12.2016. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti það á fundi sínum þann 18.01.2017. Lögð fram lýsing dags. 12.05.2017 vegna breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er nær til breyttrar landnotkunar Víðistaðasvæðis.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti að unnið verði að breyttri landnotkun fyrir svæðið í samræmi við 1. mgr. 36.gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn:
'Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnið verði að breyttri landnotkun fyrir svæðið í samræmi við 1. mgr. 36.gr. skipulagslaga.'